Top

Mánudagur

Við Björn Imsland fórum yfir stöðu framkvæmda í dag. Allt er komið á góðan rekspöl í stærstu framkvæmdum á vegum sveitarfélagsins. Unnið er í Gömlubúð og við Krakkakot. Einnig er unnið hörðum höndum að útboðsgögnum um frágang gatna á Leirusvæði.
Vann í að fylgja fundum fyrir helgina eftir. Taka þarf saman minnispunkta og leggja fyrir bæjarráð. Þetta varðar skipulag á vestanverðum Breiðamerkursandi, stækkun matarsmiðju Matís og aukin stuðning við rannsóknir og vöruþróun í ferðaþjónustu.
Bæjarráð fundaði undir kvöld eins og vaninn er á mánudögu. Lauk við að úteilda fjármunum til kaupa á stofnbúnaði í stofnunum, ræddi umsjón og eftirlit með Bárunni og Mánagarði sem skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd fær í kjölfarið á sitt borð ásamt því að ræða og afgreiða fleiri erindi.

1 Comment

  • Sæmundur Jón Jónsson Says

    Sæll Halti og gleðilegt nýtt ár!
    Velti fyrir mér hvort ekki þurfi að vera sími í Bárunni þannig að möguleiki sé á að ná í umsjónarmann/þjálfara sem þar er. Einnig hlýtur það að vera öryggisatriði að geta hringt þaðan ef eitthvað kemur upp á, velti þessu fyrir mér þar sem ekki virðist vera neinn umsjónamaður með húsinu.
    Kveðja Sæmundur Árbæ

Leave a comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>